Helgi Rúnar
17.03.2005 19:29:22 / helgirg

Farin til köben!!

Hei ég ætla að skreppa til Danmerkur í smá tíma. Ég heyri í ykkur þegar ég kem til baka. Ég held nefnilega að danir séu ekki með internet:$

» 105 hafa sagt sína skoðun

08.03.2005 13:17:58 / helgirg

Hvað er í gangi

Jæja... er maður ekkert að standa sig í blogginu eða!
Maður er ekki búinn að segja neitt í langan tíma þannig að það hlítur að vella upp úr manni einhver vitleisa núna. Seinasta helgi var bara ágæt hjá mér. Ég fór í bæinn á föstudagskvöldinu og kláraði að taka upp gítarana í ,, The Rising", sem verður vonandi komið í spilun um páskana. Síðan fórum ég, Maggi, Lovisa, Eyþór Kráka, Ingó og Bassi á tónleika með Skátum, brúðarbandinu, Lirmil og einhverjum útlenskum gaur á Grand Rokk. Það var allveg ágætt. Ég ætlaði nú að keyra heim aftur um kvöldið en á Grand Rokk hitti ég fyrir nokkra vini frænku minnar og þeir buðu még bjór og skot þannig að það ég gisti bara í bænum. Eftir Grand Rokk fórum ég, Bassi, Eyþór og Ingó á Gaukinn og þar hittum við fyrir meistara Steinar. Hann var helvíti hress og sagðist vera að bæta upp fyrir Akureyraferðina helgina áður þar sem hann gat ekkert drukkið sökum skitu. Gaman af því.. Eyþór og Bassi entust nú ekki lengi þarna en ég og Ingó vorum eftir og tókum nokkur vel valin dansspor á gólfinu þarna áður en það var farið. þá var klukkan 6.
Ég krassaði í sófanum hjá Eyþóri og náði að sofa í tvo tíma áður en ég þurfti að keyra heim á Selfoss til þess að mæta í vinnuna. Það var versti vinnudagurinn minn frá upphafi í Húsasmiðjunni. Ég fór nú bara heim að sofa eftir vinnu kl. 4 og svaf til kl. 9. Fór síðan aftur að sofa kl. 12 og vaknaði morguninn eftir kl. 11 og fór aftur í vinnuna kl. 12. Vinna, sofa, vinna, sofa.................... Já.. þannig var seinniparturinn af helginni.

Allir að muna eftir tónleikunum á Grand Rokk á fimmtudaginn (10.mars)!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Lag Dagsins: Mirandina that ghost just isn't holy anymore, part B - The Mars Volta


» 95 hafa sagt sína skoðun

05.03.2005 23:22:31 / helgirg

Benny Crespo's Gang tónleikar!!!!!

Já við erum að fara að spila á Grand Rokk fimmtudaginn 10. mars.
Við verðum að spila með hljómsveitunum The Telepathetics og Nilfisk.
Húsið opnar kl.22:00 og það er frítt inn.
Endilega látið sjá ykkur:haha:


» 106 hafa sagt sína skoðun

03.03.2005 15:16:36 / helgirg

Vá er ég latur!!!!!!!

Hér er uppskrif af  kröftugri íslenskri kjöt súpu fyrir 4..  Ég nenni ekki að blogga í dag þannig að.......... Það gæti líka einhver haft gagn af þessu.

1.8  l vatn
kg gott súpukjöt frá SS
500  g kartöflur
500  g gulrófur
250  g gulrætur
1½  dl hrísgrjón
100  g hvítkál
½  dl haframjöl (má sleppa)
1½  msk súpujurtir
msk salt(eða eftir smekk)
½  stk laukur, saxaður smátt
 

nýmalaður pipar



Aðferð
Kjötið e.t.v. fituhreinsað að hluta og síðan sett í pott, vatninu
hellt yfir og hitað að suðu. Froða fleytt ofan af, saltað og
súpujurtum, lauk og hrísgrjónum hrært saman við. Soðið í um
40 mínútur. Á meðan eru gulrófurnar afhýddar og skornar í bita,
kartöflurnar afhýddar og skornar í helminga eða fjórðunga, ef
þær eru stórar, og gulræturnar skafnar og skornar í bita. Sett út
í og soðið í 15 mínútur til viðbótar. Kálið skorið í mjóar ræmur,
sett út í og soðið í um 5 mínútur, eða þar til allt grænmetið er
meyrt. Um leið er haframjölið sett ef á að nota það. Smakkað og
bragðbætt með salti og pipar, ef þarf. Kjötið er ýmist borið fram
í súpunni eða með henni á sérstöku fati.

Lag dagsins: Pink Love - Blonde Redhead

Fyndin mynd:haha:


» 112 hafa sagt sína skoðun

02.03.2005 15:16:57 / helgirg

Benny Crespo's Gang í stúdíói

Skelli hérna nokkrum myndum af okkur í, Benny, frá því við kíktum í stúdíó um daginn.


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.03.2005 12:53:15 / helgirg

Kátir dagar??

Vá hvað ég er þreittur. Ég er búinn að sofa í 4 klukkutíma í nótt8|. Ég fór ú bæinn í gær og keypti mér nýja skó, converse skórnir mínir voru orðnir frekar þreittir þannig að ég keypti mér nýja. Síðan fór ég til hans Magnúsar Öders stórvinar míns og við ætluðum að fara að taka upp gítarinn í ,, The Rising". Þegar ég kom var hann e-ð að taka til. Þá var klukkan 6. Eftir smá tíma fór ég að reka á eftir honum. Þá sagði hann alltaf; bíddu aðeins ég er allveg að verða búinn. Síðan sagði hann þetta á 10 mínútna fresti þangað til klukkan var orðin 8 og þá áttum við eftir að éta. FRÁBÆRT:S. Síðan komumst við loksins niður í húsnæði og fórum að taka upp. Það tekur sko alltaf miklu lengri tíma en maður gerir upphaflega ráð fyrir og ég var ekki kominn heim fyrr en klukkan 3 í nótt og var nokkrum sinnum nærrumþví búinn að láta lífið á leiðinni sökum syfju.

Núna eru kátir dagar í skólanum hjá mér og það eru allskonar sona fyrirlestrar og dót. Það er skylda að mæta á e-ð af þessu þannig að ég er að pæla í að skella mér bara á fyrirlestur sem kallast Deit og Daður með Helgu Braga. Það má alltaf bæta daðurtæknina aðeins hehe... Vonandi sofna ég ekki.

Lag dagsins: Messenger - Blonde Redhead


» 127 hafa sagt sína skoðun

28.02.2005 21:42:57 / helgirg

Johnny's got a Baby

Hérna er textinn við lagið Johnny's got a Baby með okkur í Benny Crespo's gang. Langaði bara að setja hann hérna inn því mér finnst hann töff:D

Johnny 's got a Baby

I want my baby, I want my baby now!

Johnny, wait a minute maby later
slow slow slow down
I've got to go work waiting
money doesn't fall from the sky

I need my baby, I need my baby now!

Johnny, this is the night you wanted
I'm ready pick me up, let's go out
we'r gonna go out dancing
dance untill the sun comes

I've got my baby, I've got my baby now!


» 81 hafa sagt sína skoðun

28.02.2005 19:53:18 / helgirg

Hvernig væri að vera með sona bloggsíðu?!!

Jæja hér er fyrsta færslan á nýju bloggsíðuna mína.

Það er mánudagur í dag sem þýðir að helgin er nýbúin. Mánudagur er líka yfirleitt næstleiðilegasti dagurinn í vikunni þannig að þá er maður yfirleitt mjög þunglindur. En í dag er ég ekkert mjög þunglyndur, ég er aðallega slappur eftir bestu helgi sem ég hef átt í langan tíma.
Já helgin maður. Ég fór til Akureyrar um helgina að spila á tónleikum með hljómsveitinni minni. Það var alveg helvíti gaman. Við lögðum af stað frá Reykjavík, á 15 manna Ford Econleine, með vinum okkar í hljómsveiunum Haltri Hóru og Coral snemma á föstudegi. Það var alveg mögnuð ferð, mikið drukkið og sukkað á leiðinni. Síðan komum við til Akureyrar seinnipart dagsins og þá fóru menn beint í að róta upp öllu draslinu, í misgóðu ástandi, á stað sem heitir Húsið. Þar voru tónleikar um kvöldið fyrir alla aldurshópa. Fínir tónleika, en það hefði mátt vera betri mæting. Eftir það var farið upp á Heimavist Menntaskólans á Akureyri, þar sem við áttum að búa um helgina, og komið sér fyrir í herbergjum sem fólk hafði lánað okkur yfir helgina. Síðan var farið og tjekkað á lífinu í hjarta Akureyrarbæjar. Það var helvíti fínt. Á laugardeginum vöknuðu svo flestir mjög þreittir eða þunnir og þá var farið beint upp á Oddvita með allt draslið og rótað upp fyrir tónleika sem voru þar um kvöldið. Það var byrjað í fyrra lagi og mjöðurinn fór að renna ljúft niður kverkarnar á flestum mjög snemma um daginn. Um kvöldið, fyrir tónleikana, var farið og etið dýrindismáltíð á stað sem heitir *ég man það ekki*, en það var geðveik steik. Sumir áttu erfiðara með að halda matnum niðri en aðrir:). Já en tónleiarnir um kvöldið voru geðveikir. Fullt af fólki, geðveik stemmning, mikið sukk, bestu hljómsveitir á íslandi komnar saman, ekkert gat klikkað. Síðan var eftirpartíið í rútunni geggjað. Við reindum og reindum að finna e-ð partí en ekkert gekk. Kommon, hver vill fá fulla 15 manna rútu með 5 yfirfarþegum í partí til sín? ekki ég allavega. En þetta reddaðist og við héldum bara partí í rútunni og drukkum gin og grape og grænan landakokteil sem Andrés, bassaleikari Coral, fann upp. Ég ætla ekki að tala mikið um morgunninn eftir en þá var mikil þinka og við vorum ekki lögð af stað til Reykjavíkur fyrr en kl.5 um daginn. Ég stakk upp á því að það yrði partí í rútunni á leiðinni heim og fór að hella í mig en fattaði svo þegar við vorum komin soldið af stað að ég átti eftri að keyra heim á Selfoss þegar við kæmum í bæinn þannig að það var bara slakað á.
Ég vill þakka öllum sem komu að þessari ferð og þá fá Kingstone strákarnir sérstakar þakkir fyrir að koma þessu öllu í kring. Alveg svakalega sérstakar þakkir fær stelpan sem fór úr herberginu sínu yfir helgina til að leifa mér, Sibba og Bassa að gista í því. Við hittum þessa stelpu aldrei en við keiptum handa henni smá blómaskreitingu og lögðum á rúmmið hennar áður en við fórum.
Allveg hreint magnað!!!

Lag dagsins: L' Via L' Viaquez - The Mars Volta


» 117 hafa sagt sína skoðun